Coca cola súkkulaðikaka
250 g smjör
175 ml Coca cola
250 g hveiti
1/2 tsk matarsódi
3 msk kakóduft
300 g sykur
2 egg
250 ml mjólk
1/2 tsk vanilludropar
Setjið smjör og Coca Cola í pott og bræðið saman við vægan hita. Sigtið hveiti,
matarsóda og kakóduft saman í skál og bætið sykri saman við. Hrærið egg rólega
saman við, fyrst öðru og svo hinu. Hellið mjólk út í smjörblönduna þannig að hún
kólni örlítið og hellið henni út í skálina ásamt vanilludropum hrærið saman og
setjið í vel smurt kökuform. Setjið strax inn í ofn þar sem gosið fer strax að
vinna í kökublöndunni. Bakið við 180°C í u.þ.b. 40 mín. í miðjum ofni.
Súkkulaðihjúpur:
100 g smjör
2 msk Coca cola
200 g flórsykur
2 msk kakóduft
Bræðið smjör og Coca Cola saman í potti. Setjið flórsykur og kakóduft saman í
skál. Hellið smjörblöndunni yfir þurrefnin í smáum skömmtum og hrærið vel á
milli. Gætið þess að smjörblandan sé ekki of heit þegar henni er bætt út í.
Hellið hjúpnum yfir kælda kökuna og skreytið að vild. Skreytið til dæmis með
rifnu súkkulaði, bæði dökku og ljósu, ferskum ávöxtum eftir smekk, berið fram
með passíualdinrjóma.
Passíualdinrjómi:
150 g mascarpone-ostur
150 g léttþeyttur rjómi
2 msk innan úr passíualdini
Hrærið allt saman í skál og kælið svolítið.