Chili-súkkulaðikaka


Súkkulaði og chili-pipar eru með eindæmum gott par. Prófaðu að bæta smá chili-pipar út í hefðbundna heita súkkulaðiköku, eins og þessa hér að neðan. Kökuna má auðvitað gera í einu stóru formi, en hér er hún sett í lítil eftirréttaform, svo að hver gestur fái köku á stærð við munnbita á diskinn sinn.

200 g smjör
200 g dökkt súkkulaði
250 g sykur
5 egg
Rúm msk. hveiti
1 ½ tsk. chili-duft

Bræðið smjörið og súkkulaðið saman í litlum potti. Færið yfir í skál og bætið sykrinum saman við. Hrærið með trésleif og leyfið blöndunni að kólna aðeins. Bætið þá eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á eftir hverju eggi. Bætið rúmri msk. af hveiti og chili-dufti út í og blandið vel saman. Hellið í lítil form og bakið í 10- 12 mínútur. Kökurnar eiga að vera stökkar að ofan en enn mjúkar inni í. Kælið þar til hægt er að ná þeim úr formunum, kælið áfram á grind. Geymið í plastíláti í kæli, en takið kökurnar út klukkutíma áður en þær eru bornar fram.