Brún randalína

250 g smjörlíki
325 g sykur
500 g hveiti
2 egg
3 msk. kakó
1 tsk. matarsódi
2 tsk. negull
1 tsk. kanill
½ tsk. kardimommudropar
2 dl mjólk


Krem:
2 msk smjör/smjörlíki
2 bollar flórsykur
1 eggjarauða
2 msk. rjómi
Vanilludropar eftir smekk

Hrærið smjörlíki þar til lint og ljóst. Setjið sykur og egg saman við og hrærið. Bætið hveiti, matarsóda, kryddi og kakói út í og hrærið saman. Bætið mjólk út í og hrærið þar til deigið verður lint. Smyrjið deiginu í fjórum hlutum á bökunarplötu, svo hver lengja verði um 0,5 cm á þykkt. Bakið við 200 gráður í 20 mín. Hrærið innihaldi kremsins saman. Raðið kökunni saman og smyrjið kremlagi á milli lengja, svo samtals verði þrjú lög.