Bökuð súkkulaðiostakaka
1 pakki Homeblest-súkkulaðikex
100 g smjör, lint
150 g suðusúkkulaði
400 g rjómaostur, mjúkur
100 g sykur, eða eftir smekk
3 egg
200 ml sýrður rjómi (18%)
2 tsk vanilluessens
Ofninn hitaður í 165 gráður. Kexið mulið smátt,
helmingnum af smjörinu hrært
saman við, og blöndunni jafnað á botninn á meðalstóru springformi.
Afgangurinn af smjörinu settur í pott ásamt 125 g af súkkulaði og brætt við
vægan hita. Rjómaostur og sykur hrært saman og þegar blandan er slétt er
súkkulaðinu hrært saman við og síðan eggjunum, einu í senn, sýrða rjómanum
og vanilluessensinum. Hellt yfir kexbotninn, sett í ofninn og bakað í um 1
klst, eða þar til kakan er stíf út við barmana en dúar enn í miðjunni. Þá er
slökkt á ofninum, dálítil rifa opnuð á hann og kakan látin standa í a.m.k.
hálftíma. Tekin út og látin kólna á grind og síðan sett í ísskáp yfir nótt.
Afgangurinn af súkkulaðinu (25 g) bræddur í vatnsbaði og dreypt yfir kökuna
úr teskeið. Látið storkna og síðan er kakan borin fram, e.t.v. með þeyttum
rjóma.