Blaðlauksostakaka með marineruðum tómötum
Botn:
250 g hafrakex
100 g smjör
Fylling:
150 g laukur (um það bil einn meðalstór)
250 g blaðlaukur, bara hvíti hlutinn (2 litlir stilkar eða 1 stór)
40 g smjör
1 1/2 dl rjómi
200 g rjómaostur
2 egg
salt og pipar
Marineraðir tómatar:
1 bakki af konfekt- eða kirsuberjatómötum
1-2 msk sérrý- eða balsamiktedik
1-2 msk fínt saxaður skalotlaukur (má sleppa)
1-2 msk ferskt tímían eða esdragon
salt og pipar
Forhita ofninn í 180°C
Myljið kexið og bætið bræddu smjöri út í. Þrýstið blöndunni í botn og upp með
hliðum á spring formi og bakið í örfáar mínútur þar til skelin rétt gyllist.
Bræðið smjörið í fyllinguna á pönnu. Bætið lauknum útí og steikið við vægan hita
þar til hann er glær. Setjið þá blaðlaukinn út í og steikið áfram í nokkrar
mínútur þar til hann mýkist.
Passið að laukurinn brúnist ekki. Næst fer um hálfur desílítri af rjómanum út í
ásamt rjómaostinum. Slökkt undir pönnunni og hrært öðru hverju meðan þetta
samlagast.
Saltið og piprið eftir smekk og leyfið blöndunni að kólna lítillega.
Eggin eru slegin í sundur og desílítrinn sem eftir er af rjómanum hrærður út í.
Rjómaostablandan er svo hrærð saman við eggin og öllu hellt í bökuskelina.
Bakað við 180°C í 20-30 mínútur, eða þangað til fyllingin er orðin stinn.
Takið úr forminu og látið kólna.
Tómatarnir eru skornir í tvennt eða fernt eftir stærð. Kryddjurtirnar eru
saxaðar fínt og öllu blandað saman. Borðið með kökunni.