Í botn:
200 gr ósaltað smjör
½ pakki Homeblest súkkulaðikex
½ pakki Grahamskex
Í fyllingu:
1 peli rjómi
200 gr rjómaostur
1 lítil dós af bláberjaskyri
½ bolli flórsykur
Ofaná:
Bláberjagrautur eða bláberjasulta
Bræðið
smjörið og myljið kexið út í. Hellið þessu í botninn á kringlóttu fati. Jafnið
botninn út í allt fatið.
Þeytið rjómann.
Þeytið saman rjómaostinum, skyrinu og flórsykrinum. Þeytið þar til blandan er
kekkjalaus. Hrærið þá rjómanum varlega út í. Hellið blöndunni yfir kexið og
smyrjið blöndunni varlega yfir það.
Að lokum er bláberjagrautnum/-sultunni hellt yfir kökuna. Ekki láta mjög þykkt
lag.
Kælið í tvo tíma áður en kakan er borin fram.