Bláberjamuffins með rjómaostakremi
Uppskrift að 16 kökum

KÖKURNAR:
150 g smjör (ósaltað)
2 dl hrásykur
2 egg
3 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/2 dl hrein jógúrt
3 og 1/2 dl bláber, fersk eða frosin


KREM:
6 msk. rjómaostur
3 msk. 10 prósent sýrður rjómi
flórsykur eftir smekk (gott að smakka sig áfram)
smá vanillusykur

hrærið allt vel saman. Smjör og sykur hrært létt og ljóst. Eitt egg sett í einu og hrært á milli. Hveiti, lyftidufti og berjum
blandað saman við. Deigið sett í muffinsform og bakað við 200° C í um það bil 15 mínútur. Kökurnar látnar kólna aðeins áður en
kreminu er smurt á og ef til vill skreytt með berjum. Tilvalið er að nota þessa grunnuppskrift og skipta um bragðefni. Setja
til dæmis uppáhaldssúkkulaðið í staðinn fyrir bláber og svo framvegis.