Belgísk ávaxtakaka

u.þ.b. 1-1,3 kg blandaðir ávextir, hnetur, sultaður börkur, kirsiber og
annað tilfallandi, t.d.:
rúsínur, gjarna bæði dökkar og ljósar, ef þær fást
kúrennur
apríkósur, skornar í bita
gráfíkjur, skornar í bita
döðlur, steinhreinsaðar og skornar í bita
þurrkaðir bananar, skornir í bita
rauð og græn kokkteilber, skorin í bita
brasilíuhnetur eða möndlur, grófbrytjaðar
súkkat, orangeat, apsíkat eða önnur -öt
súkkulaði, brytjað (ég nota það ekki en sumum finnst það ómissandi)

150 ml brúnt romm, og meira til að vökva kökuna (eða brandí, viskí, sjerrí
eða eplasafi)

150 g smjör, lint
50 g sykur
4 egg
200 g hveiti
50 g heslihnetur, malaðar
2 tsk lyftiduft

Ávöxtum, hnetum, -ötum og annarri fyllingu blandað saman í stórri skál.
Romminu hellt yfir og blandað vel. Plast breitt yfir, látið standa í
sólarhring við stofuhita og hrært öðru hverju. Þá er ofninn hitaður í 150
gráður og stórt jólakökuform eða meðalstórt springform smurt með dálitlu af
smjörinu. Afgangurinn hrærður vel með sykrinum og síðan er eggjunum þeytt
saman við, einu í senn. Hveiti, hnetum og lyftidufti blandað saman og síðan
hrært saman við. Deiginu hellt yfir ávextina, blandað vel og sett í formið.
Yfirborðið sléttað og e.t.v. skreytt með sykruðum ávöxtum og hnetum. Sett í
ofninn og bakað í um 2 1/2 klst; prjóni stungið í miðja kökuna til að athuga
hvort hún sé bökuð. Ef hún virðist ætla að dökkna um of er gott að breiða
álpappír yfir. Hún er svo tekin út og látin kólna í forminu. Þegar hún er
köld er 2-3 msk af rommi eða brandíi dreypt yfir. Kakan pökkuð vel inn í
álpappír og/eða plast og látin standa á svölum stað í 5-10 vikur, eða til
þarnæstu jóla. Vökvuð nokkrum sinnum með rommi eða öðru.