Bananabrauð
1 egg
150 gr sykur
2 þroskaðir bananar
250 gr hveiti
½ tsk matarsódi/natron
1 tsk salt
Þeytið egg og bætið sykri saman við í smá skömmtum. Þeytið vel saman í hrærivél.
Merjið banana með gaffli og bætið út í. Sigtið saman hveiti, matarsóda og salt
og hrærið léttilega saman við bananablönduna með sleif. Setið í vel smurt
aflangt form við 180°C í 45 mín.