Banana-súkkulaði-pekanhnetumúffur
300 g bananar, vel þroskaðir
50 g pekanhnetur
50 g suðusúkkulaði
250 g hveiti
100 g hrásykur eða ljós púðursykur
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk kanell
1/4 tsk engifer
75 g smjör, lint
1 egg
100 g skyr (1/2 dós)
Ofninn hitaður í 180 gráður. Bananarnir
stappaðir í mauk, gjarna í
matvinnsluvél. Hneturnar grófsaxaðar og súkkulaðið einnig. Hveiti, sykur,
lyftiefni, krydd, smjör, egg, skyr og bananamauk hrært saman (ekki hræra
meira en þarf) og að lokum er hnetum og súkkulaði blandað saman við. Skipt í
12-16 múffuform, húðuð, smurð eða pappírsklædd, og bakað í um 15 mínútur,
eða þar til múffurnar hafa tekið góðan lit og prjónn sem stungið er í eina
þeirra kemur hreinn út. Látnar kólna á grind.