Bailey’s súkkulaðikaka
3 stk. egg
5 dl sykur
7 dl hveiti
1 tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
200 g smjörlíki
2 dl mjólk
2 dl Bailey’s Irish cream
2 tsk. vanilludropar 1,5 dl Cadbury’s
kakó
Krem
150 g smjörlíki
1 bolli Cadbury’s kakó
3 bollar flórsykur
½ bolli heit mjólk
2 tsk. vanilludropar eða kaffi Bailey’s bætt út í eftir smekk.
Aðferð kakan: Þeytið saman eggin og sykurinn svo það verði ljóst og létt. Setjið öll blautefni út í, síðan brætt smjörlíkið og að lokum þurrefnin. Bakið í þremur kökuformum við 180 gráður í u.þ.b. 20 mínútur. Sniðugt er að bræða súkkulaði (50- 100 g) og láta það leka á smjörpappír þannig að úr verði einhverskonar munstur, láta það harðna og setja það síðan ofan á kökuna til skreytingar.
Kremið:
Bræðið smjörlíkið í potti og bætið kakóinu út í, síðan volgu mjólkinni,
flórsykrinum, dropunum og að lokum Bailey’s eftir smekk. Kremið þykknar þegar
það kólnar.