Ástríðuostaterta
1/2 pakki hafrakex
100 gr brætt smjör
fersk jarðaber
500 gr rjómaostur
130 gr flórsykur
5 matarlímsblöð
appelsínusafi
4 ástríðuávextir
4 dl rjómi, þeyttur
Myljið hafrakexið og hrærið saman viið smjörið. Leggið
springform á hvolf ofan á tertudisk. Setjið kexmynsluna í botninn og þrýstið
niður. Skerið jarðaberin í tvennt og raðið í kantana á hringnum. Hrærið saman
mjúkum rjómaosti og flórsykri. Bræðið matarlímið í ávaxtasafa og setjið út í.
Skafið innan úr ávöxtunum, bætið því út í rjómaostinn og setjið þeytta rjóman
saman við. Setjið ofan á botninn og látiið ná yfir jarðaberin.
Ástríðuhlaupið
3 ástríðuávextir
1 1/2 dl appelsínusafi
4 matarlímsblöð
gulur matarlitur
Skafið innan úr ávöxtunum, setjið í pott með appelsínusafa og látið suðuna koma upp. Matarlímið brætt og bætt út í og matarlit. Látið kólna aðeins og setjið ofan á kökuna.