Ananas- og sítrónuostakaka
Botn:
1 pakki Grahams Haustkex
50 gr brætt smjör
2 msk sykur
Fylling:
1 pakki Toro sítrónuhlaup
400 gr rjómaostur
½ ananaskurl
½ lítri þeyttur rjómi
Athugið að
uppskriftin dugar í 2 þunnar kökur eða eina þykka.
Myljið kexið í matarvinnsluvél og bætið sykrinum út í, því næst brædda smjörinu,
blandið vel saman og þrýstið í botn á springformi. Látið kólna.
Byrjið á hlaupinu tímanlega (helst fyrst, það þarf tíma til að stífna). Notið
aðeins helming af því vatnsmagni sem uppgefið er utaná pakkanum en annars farið
eftir leiðbeiningum.
Hrærið saman rjómaostinum, ananasnum og hlaupinu og blandið því varlega saman
við þeytta rjómann. Hellið yfir kexbotninn og látið stífna í að minnsta kosti
einn sólarhring í kæli.
Ostakökur geymast vel í ísskápnum og eru jafnvel betri eftir því sem þær verða
eldri, þó aldrei lengur en í 2 vikur.