Amerískar pönnukökur
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
2 tsk sykur
2 egg
350 ml súrmjólk
75 ml matarolía, og meira eftir þörfum
Hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og sykri
blandað saman í skál. Egg,
súrmjólk og sykur hrært saman í annarri skál. Hellt yfir þurrefnin og hrært
þar til soppan er slétt. Meira hveiti eða súrmjólk bætt við eftir þörfum;
þetta á að vera fremur þykk lummusoppa. Panna hituð (best að nota stóra,
húðaða pönnu, pönnukökupanna er of lítil), dálítil olía sett á hana og
fremur stórar lummur steiktar, 3-4 í senn, við vægan hita. Snúið þegar
loftbólugötin sem myndast á efri hliðinni eru hætt að lokast jafnóðum.
Steiktar gullinbrúnar á hinni hliðinni og síðan staflað á disk og haldið
heitum á meðan lokið er við að steikja hinar. Best er að setja alltaf
dálitla olíu á pönnuna á undan hverjum skammti.