Alvöru Skyrkaka
Hráefni:
1 pakki kanilkex frá Lu, mulið (Bastogne)
80 g brætt smjör
5 dl rjómi, þeyttur
500 g KEA vanilluskyr
3 msk. bláberjasulta
150 g bláber
200 g jarðarber
Aðferð:
Blandið kexmylsnunni og smjörinu saman og þrýstið á botninn á vel smurðu
smelluformi.
Hrærið rjómann varlega saman við vanilluskyrið og hellið ofan á kexbotninn.
Setjið bláberjasultuna gætilega ofan á, ásamt bláberjum og jarðarberjum sem hafa
verið
skorin í bita. Það er í góðu lagi að útbúa skyrtertuna daginn áður, en hún þarf
allavega að
standa í kæli í 3-4 klukkustundir áður en hún er borin fram.
