Afmælisgóðgæti
100 g. Smjör
4 msk sýróp
100 g. Síríus konsúm
100 g. Fyllt karamellusúkkulaði (Nóa Sírius - en það er nú af því að uppskriftin
er frá þeim!)
4 bollar Rice Crispies (ég bæti nú oft við ...fer eftir hversu stóra köku ég
vill hafa :)
3/4 peli rjómi
Banani
10-15 töggur eða 8-12 grænar Freyju kermellur
Smjörið, sýrópið, síríus konsúmið og fyllta
karmellusúkkiulaðið brætt saman í potti og Rice Crispies sett út í...
Sett í form og svo er voða gott að setja botninn í frystinn til að kæla hann ...
ef maður er að flýta sér eins og alltaf!!!
Banani settur ofan á botninn og rjómi þar ofan á....svona 3/4 af pela eða eftir
smekk
Töggur eða grænar Freyjukaramellur bræddar svona 10-15 töggur eða 8-12 Freyju í
potti eða örbylgju og smá rjóma bætt út í til að þynna kremið....látið kólna (ég
set það nú líka í frystinn!) og hellt yfir herlegheitin! Þú mátt líka nota
karamellusósu en hún er kannski aðeins of þunn.