saltimbocca með kartöflumús
4 kjúklingabringur
handfylli af ferskri salvíu
8 hráskinkusneiðar
Olía til steikingar
1 msk smjör
1 ½ kjúklingakraftskubbur
600 ml hvítvín
Salt og pipar
Hitið ofninn í 180 C. Fletjið bringurnar með kökukefli og skerið hverja bringu í
tvo hluta. Raðið salvíulaufum ofan á og vefjið hverjum hluta inn í
hráskinkusneið. Hitið olíu á pönnu og snöggsteikið bringurnar í mínútu á hvorri
hlið og leggið á smjörpappírsklædda ofnplötu. Bakið í ofninu í 20 mínútur.
Bræðið smjörið á pönnunni og steikið afganginn af salvíulaufunum út í ásamt
kjúklingakraftinum. Hellið hvítvíninu út á og látið sjóða örstutta stund, lækkið
þá hitann og látið malla þar til kjúklingurinn er tilbúinn. Kryddið með salti og
pipar
Kartöflumús með Canellini baunum
4 bökunarkartöflur
150 g tilbúnar Cannellini baunir
50 ml mjólk
2 msk smjör
salt eftir smekk
Skerið kartöflurnar í minni bita og sjóðið. Skrælið kartöflurnar og setjið þær
ásamt baununum í hrærivélaskál. Bætið mjólk og smjöri út í og hrærið. Saltið
eftir smekk. Gætið þess að hræra ekki og lengi því þá getur kartöflumúsin orðið
teygjanleg.
Þessi réttur er úr þáttunum Léttir réttir Rikku, hægt er að horfa á þáttinn
hér