chili-& jógúrtkjúklingur
fyrir 4

4-6 Holtakjúklingalæri og 4-6 kjúklingaleggir
1 stór græn paprika skorin í stóra bita
2 msk olía
tvö knippi ferskt kóríander gróft skorið

Blanda 1
4 stk ferskur grænn chili gróft skorinn
4 hvítlauksgeirar smátt skornir
7½ cm engifer grófsaxað
6 dl hrein jógúrt
1 tsk paprikuduft
1 tsk salt

Blanda 2
½ tsk nýmalaður svartur pipar
1 tsk sykur

Undirbúið daginn áður:
Skerið í skinnið á kjúklingabitunum. Setjið blöndu 1 í blandara og hrærið þar til vel maukað. Setjið síðan grænu paprikuna saman við og blandið þar til paprikan er orðin vel maukuð, hellið síðan yfir kjúklinginn, breiðið yfir skálina og geymið yfir nótt í ísskápnum. Hitið olíuna á pönnu, hreinsið maukið af kjúklingabitunum og geymið, steikið bitana í 1-2 mín. Maríneringin og blanda 2 sett saman við og látið krauma í 10 mín., hrærið öðru hvoru. Lokið pönnunni og látið krauma á miðlungshita í 30 mín. eða þar til kjúklingurinn er orðinn vel soðinn. Að síðustu er kóríander stráð yfir. Borið fram með nanbrauði og fersku grænmeti.

Uppskrift eftir Yasmine Olsson
Eldaði þessa þegar ég var gestakokkur í TM