Cashew-kjúklingur frá Laos

100 g kasjúhnetur
500 g kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
2 msk olía, t.d. jarðhnetuolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
2-8 þurrkuð chilialdin, fræhreinsuð að mestu, mulin eða
söxuð
1 msk ostrusósa
1 msk sojasósa
1/2 msk plómusósa (má sleppa)
100 ml vatn
1-2 vorlaukar, saxaðir

Panna hituð, hneturnar settar á hana og ristaðar þar til þær
eru rétt farnar að taka lit; hrært oft á meðan. Hellt á disk og látnar kólna.
Kjúklingabringurnar skornar í 1 cm þykkar sneiðar þvert yfir og
hver sneið síðan í tvennt. 1 msk af olíu hitað á wokpönnu eða
þykkbotna pönnu og laukur, hvítlaukur og chili sett á hana og veltisteikt í 1-2
mínútur án þess að brenna. Hellt á diskinn með hnetunum. Afgangurinn af olíunni
hitaður í wokpönnunni og kjúklingurinn settur á hana og veltisteiktur við
háan hita þar til hann hefur allur tekið lit. Ostrusósa, sojasósa,
plómusósa og vatn hrært saman og hellt yfir og síðan er hnetunum og lauknum hrært
saman við, hitinn lækkaður og látið sjóða í 3-4 mínútur. Smakkað
til, vorlauknum hrært saman við og borið fram með soðnum hrísgrjónum.