Arroz con pollo

1 kjúklingur, meðalstór (heill eða í bitum)
safi úr 1 sítrónu
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
1/2 tsk kummin
1/2 tsk oregano
nýmalaður pipar, a.m.k. 1/2 teskeið
salt
3 msk olía
1 laukur, saxaður
1 græn paprika, fræhreinsuð og söxuð
1 dós saxaðir tómatar
1/2 tsk paprikuduft
1 lárviðarlauf
250 g hrísgrjón
700 ml vatn, og meira eftir þörfum

Kjúklingurinn skorinn í 8 bita og þeir settir í skál. Sítrónusafi kreistur
yfir og síðan er hvítlauk, kummini, oregano, pipar og salti blandað saman,
dreift yfir og blandað vel. Olían hituð í stórum, þykkbotna potti eða á
djúpri pönnu og laukur og paprika látið krauma í henni í nokkrar mínútur við
meðalhita. Þá eru kjúklingabitarnir settir á pönnuna og brúnaðir á báðum
hliðum. Tómötum, paprikudufti og lárviðarlaufi hrært saman við og látið
malla í nokkrar mínútur. Þá er hrísgrjónum dreift yfir og síðan er vatninu
hellt yfir, hitað að suðu, lok sett á pottinn, hitinn lækkaður og látið
malla við vægan hita í 20-25 mínútur. Hrært nokkrum sinnum og sjóðandi vatni
bætt út í ef þarf. Smakkað til með pipar, salti og e.t.v. sítrónusafa.

Svo stráði ég dálítilli saxaðri steinselju yfir áður en ég bar réttinn fram
en það er ekki í kúbversku uppskriftinni. Aftur á móti er dálítið hvítvín í
henni en ég sleppti því.