Zesty Island kjúklingapinnar

1 l Uncle Ben's Boil in Bag hrísgrjón (5 dl jafngilda 2 pokum)
480 g kjúklingabringur, ferskar
3¾ dl ananasbitar
1¾ dl teriyaki sósa
2 stk appelsína, skorin í þunna báta
1 stk rauð paprika, skorin í 2,5 sm bita
1 stk græn paprika, skorin í 2,5 sm bita

Skerið kjúklinginn í 2,5 sm bita. Setjið kjúkling, appelsínubáta, ananas og paprikur á víxl upp á grillpinna (u.þ.b. 25 sm langa) og penslið teriyaki sósu yfir. Sjóðið á meðan hrísgrjón. Grillið pinnamatinn í 10-15 mínútur, snúið einu sinni og penslið af og til með teriyaki sósu. Berið fram með hrísgrjónum.