Tandoori-kjúklingur með gráðostasósu
4-5 kjúklingabringur
1 dós jógúrt án ávaxta (hrein jógúrt)
3 tsk. Pataks Tandoori Paste
1 laukur
Kóríander til skreytingar
Snöggsteikið laukinn. Blandið saman jógúrti og Tandoori paste. Setjið laukinn
neðst í eldfast mót. Skerið bringur í ca þrjá hluta og setjið ofan á laukinn.
Efst kemur svo Tandoori-sósan. Bakið við 200 gráður í 45 mínútur.
Naan-brauð með bóndabrie
6 lítil naan-brauð með hvítlauk og kóríander
6 msk. mango chutney
Klettasalat
Bóndabrie
Setjið naan í brauðrist til þess að hita. Setjið mango chutney á heitt brauðið.
Setjið klettasalat á það og að lokum tvær sneiðar af Bóndabrie-osti.
Best að borða þetta á meðan naan-brauðið er heitt.
Gráðostasósa
1 dós sýrður rjómi
¼ af gráðaostslaufi
3-4 hvítlauksrif
3 skeiðar mango chutney
Blandið öllu saman, smakkið til.
Berið fram með hvítum hrísgrjónum og mango chutney.