Tandoori kjúklingabringa með hýðishrísgrjónum, jógúrtsósu og steiktri grænmetisblöndu

1/2 lítri ab-mjólk
2-3 msk tandoori krydd
1 msk hvítlauksolía
4 kjúklingabringur
ferskur kóríander, saxaður

Setjið kjúklingabringurnar í ab-mjólk ásamt kryddi og látið standa í kæli yfir nótt.
Steikið kjúklingabringurnar á heitri pönnu, kryddið með salti og pipar, skvettið hvítlauksolíu og söxuðum ferskum kóríander yfir, setjið í eldfast mót og bakið í 12-15 mínútur við 180°C.

Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningum á pakka

Grænmetisblanda
rauðlaukur
laukur
kúrbítur, gulur
kúrbítur, grænn
paprika, rakuð
paprika, græn
engifer, ferskt
ólífuolía

Takið til hæfilegt magn af öllu og steikið á heitri pönnu í olíu. Engifer bætt út i í lokin.

Jógúrtsósa
ab-mjólk, 1/2 lítri
1/2 smátt söxuð gúrka
smátt saxaður, ferskur kóríander, u.þ.b. 2 msk
1 msk hunang
1 bolli sýrður rjómi
gróft salt og nýmulinn pipar

Sýrður rjómi pískaður og svo öllu hinu blandað saman við.
Látið standa í kæli í u.þ.b. 2 klst.


Borið fram með salati og ferskum mangóbitum