Tagliatelle kjúklingur
720 g ferskar kjúklingabringur
400 g tagliatelle pasta
salt
pipar
Sósa
2 dl jómfrúar ólífuolía
4 msk steinselja, fersk
4 msk basilíka, fersk
2 msk furuhnetur
1 msk parmigiano ostur, rifinn
2 stk hvítlauksrif
pipar
salt
Saxið bæði basilíkuna og
steinseljuna og rífið síðan parmigiano ostinn.
Kryddið kjúklingabringurnar með salti og pipar og brúnið á heitri pönnu stutta
stund. Bakið þær síðan í ofni við 165°C í 25 mínútur. Sjóðið pastað samkvæmt
leiðbeiningunum á umbúðunum. Sigtið vatnið af pastanu eftir
suðu og
blandið sósunni saman við pastað. Skerið kjúklinginn í bita og berið hann fram
með pastanu.
Sósa
Setjið allt sem fara á í sósuna
saman í matvinnsluvél og maukið.
Berið fram með
smjörsteiktum ætiþistlum og tómötum.