Súrsætur kjúklingur

1,2 kg kjúklingur
1 msk matarolía
2 msk barbecue-sósa
2 msk edik
2 msk sérrí
1 msk sojaósa
1 tsk sesamolía
250 g eggjanúðlur

Sósa
1 msk matarolía
150 g niðursoðinn ananas
1/2 msk engiferrót
1 hvítlauksrif
1 dl vatn
1 dl ananassafi
2 tsk barbecue-sósa
1 msk sojasósa
2 msk sérrí
1/2 kjúklingateningur
1 msk edik

Hitið ofninn í 180 gráður. Blandið olíu, vatni, barbecue-sósu, ediki, sérríi, sojasósu og sesamolíu vel saman og penslið kjúklinginn vel með kryddblöndunni.

Setjið í eldfast mót og inn í ofninn. Steikið kjúklinginn í a.m.k 50 mínútur.

Sósan
Hitið olíu á pönnu. Merjið hvítlauk og rífið engiferrót og mýkið í olíunni. Skerið ananashringi í bita og hitið á pönnunni með kryddinu. Hellið vatni, sojasósu, barbecue-sósu, sérríi, ediki og myljið
kjúklingateninga út í. Hleypið upp suðu og þykkið ef þarf með sósujafnara.

Berið fram með kínverskum núðlum, blaðlauk, agúrku og rauðri papriku, sem allt er skorið í fína strimla.