Stökkir kjúklingaleggir á fjóra vegu
12 kjúklingaleggir
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 msk. engifer, fínt saxað
1/2 chili-aldin, fræhreinsað og
skorið í sneiðar
1 tsk. kjúklingakraftur
Setjið allt í pott, ásamt svo miklu vatni að rétt fljóti yfir leggina,
og sjóðið við vægan hita í 20-25 mín.Takið leggina úr vatninu og
kælið. Útbúið hjúp (sjá uppskriftir)og veltið leggjunum upp úr
honum.
Djúpsteikið leggina í 170-180°C heitri olíu í 3-5 mín. eða þangað til leggirnir
eru orðnir fallega brúnir og heitir í gegn.
Einnig má steikja þá í 200°C heitum ofni í 7-10 mín. eða þangað
til þeir verða fallega brúnir.
Kókós-
og karríhjúpur
1-2 msk. karríduft
2 dl hveiti
2 egg, pískuð
2 dl rasp
1 dl kókosmjöl
Blandið saman karríi og hveiti,veltið leggjunum upp úr blöndunni og síðan upp úr
eggjunum. Blandið raspinu saman við kókosmjölið og veltið leggjunum að síðustu
upp úr því.
Kryddjurta hjúpur
1 dl hveiti
1 msk. blandað jurtakrydd
salt og pipar
2 egg, pískuð
2 dl rasp
1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 dl fínt saxaðar kryddjurtir, t.d.
basil, steinselja, tímían, estragon
eða graslaukur
2 msk. parmesanostur
Blandið saman hveiti, jurtakryddi,salti og pipar og setjið í skál. Þá
er raspinu, kryddjurtunum, hvítlauknum og parmesanostinum blandað saman í aðra
skál.Veltið leggjunum fyrst upp úr hveitiblöndunni,þá upp úr eggjunum og síðast
upp úr raspinu.
Hnetuhjúpur
1 dl hveiti
1 tsk. kjúklingakrydd (chicken seasoning)
2 egg, pískuð
1-2 tsk. hnetusmjör
1 dl rasp
1 dl blandaðar hnetur, kurlaðar
Blandið saman hveiti og kjúklingakryddi. Þeytið saman egg og hnetusmjör. Blandið
saman raspi og hnetukurlinu. Veltið leggjunum fyrst upp úr hveitiblöndunni, þá
upp úr eggjunum og síðast upp úr raspinu.
Mexikóskur nachos-hjúpur
1 dl hveiti
1-2 msk. blandað mexíkókrydd
2 egg, pískuð
2 dl nachos, kurlað í matvinnsluvél
Blandið saman hveiti og kryddi og veltið leggjunum fyrst upp úr
blöndunni, síðan upp úr eggjunum og að lokum upp úr nachoskurlinu.
Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson
Úr
Gestgjafanum
