8
stk. Kjúklingalæri með skinni og beini
1 msk olífvuolía
1 tsk paprikuduft
1 tsk salt
1 tsk svartur pipar
Ávaxta salsa:
3 stk þroskaðar perur skornar í teninga
4 stk þroskaðar plómur skornar í teninga
½ bolli þurrkuð trönuber
¼ bolli rauðlaukur fínt saxaður
¼ bolli rauð paprika söxuð
1 stk Jalapeno piparbelgur, steinhreinsaður og saxaður fínt
3 msk basil saxað
1 tsk sykur
¼ tsk kanill
1 msk balsamic edik
1 msk olífuolía
½ tsk salt
½ tsk svartur pipar
For hitið ofninn í 180°. Blandið saman í stóra skál kjúklinga lærunum,
ólívuolíunni,paprikuduftinu, saltinu og piparnum. Hrærið aðeins í.
Setjið lærin í eldfast mót eða steikingarpott (ekki með loki) með skinnið niður
og steikið í 20 mínútur. Snúið lærunum við og steikið í 20 mínútur í viðbót.
Ávaxta salsa:
Setjið allt hráefnið í stóra skál, hrærið aðeins í og látið standa við
herbergishita í smá stund. Smakkið til og saltið og piprið eftir smekk.
Berið lærin fram á disk með 1 – 2 msk af salsa sósunni ofaná. Berið umfram
salsasósu fram í skál með.
