Spínatfylltur kjúklingur

 

4 kjúklingabringur

Spínatfylling

Olía til steikingar

1 hvítlauksrif, fínt skorið

6 baslblöð

6 sólþurrkaðir tómatar

100 g hreinn fetaostur

 

Hitið olíu í potti og mýkið hvítlaukinn, setjið sólþurrkuðu tómatana, spínatið og basilið út í. Steikið þar til spínatið er orðið að mjúkum massa. Kælið aðeins, bætið fetaostinum saman við. Setjið vasa í kjúklingabringurnar og fyllið með spínatinu. Steikið kjúklingabringurnar í um það bil 7 mínútur á hvorri hlið. Gott er að loka sárinu með tannstöngli ef það opnast. Saltið og stráið yfir muldum svörtum pipar.