Spínat- og fetaostafylltur kjúklingur með beikoni og
selleríkartöflumús
1 msk ólífuolía
1 stk hvítlauksrif, smátt saxað
2 stk handfylli af spínati
2 msk fetaostur
4 stk kjúklingabringur
nýmalaður pipar
8 stk beikonsneiðar
olía til steikingar
Hitið ofninn í 180°C. Hitið ólífuolíuna á pönnu og steikið hvítlaukinn ásamt
spínatinu. Steikið þar til spínatið er orðið mjúkt. Blandið fetaostinum saman
við, Skerið vasa í hlið hverrar bringu og fyllið með spínatinu.
Kryddið bringurnar með pipar og vefjið beikoninu utan um þær. Steikið bringurnar
upp úr smá olíu á pönnu við meðalhita í u.þ.b. 6 mínútur á hvorri hlið. Raðið
þeim í eldfast mót og bakið í 25 mín. Beri fram með selleríkartöflumús.
Selleríkartöflumús
200 g sellerí, hreinsað og skorið í bita
200 g kartöflur, afhýddar og skornar í bita
2 msk volg mjólk
1 msk smjör
salt og pipar
1 1/2 tsk smátt saxað ferskt rósmarín (má sleppa)
Sjóðið selleríið og kartöflurnar í sitt hvorum pottinum þar til þær eru mjúkar í
gegn. Sigtið vatnið frá og maukið selleríið og kertöflurnar saman ásamt
mjólkinni, smjörinu og rósmaríninu, kryddið með salti og pipar.