Reyktur kjúklingur

1 reyktur kjúklingur, um 1,5 kg
2 msk olía
2 msk dijonsinnep
2 msk hunang
1 tsk oregano
1/4 tsk nýmalaður pipar
chilipipar á hnífsoddi

Ofninn hitaður í 170 gráður. Steikarfat penslað með olíunni, kjúklingurinn
settur í það, stungið í ofninn og hann steiktur í 50-60 mínútur. Sinnep,
hunang, oregano, pipar og chilipipar hrært saman í skál. Kjúklingurinn
tekinn úr ofninum og hitinn hækkaður í 200 gráður. Kjúklingurinn penslaður
vel með sinnepsblöndunni og settur aftur í ofninn í um 20 mínútur, eða þar
til hann er fallega gullinbrúnn. Rétt er að fylgjast vel með honum í lokin
svo að hann brenni ekki um of. Látinn standa nokkra stund áður en hann er
borinn fram, gjarna í hálfopnum ofninum eftir að búið er að slökkva á honum.

Á meðan má svo búa til sósu, t.d. nota soðið sem uppskrift er að hér á
eftir, svona 1/2 l, skvetta e.t.v. út í það svolitlu hvítvíni og bragðbæta
með ögn af sinnepi og hunangi, og þykkja sósuna svo með smjörbollu (hræra
saman linu smjöri og hveiti í jöfnum hlutföllum og hræra saman við sósuna)
eða sósujafnara. Það er líka tilvalið að hafa brúnaðar kartöflur með
kjúklingnum, nú eða sætar kartöflur, svo og gufusoðið grænmeti, t.d.
gulrætur og spergilkál.