Quesadillas með kjúklingi og Guacamole
Quesadillas með kjúklingi (má nota annað kjöt í staðinn). Hægt er að útbúa
quesadillas á marga vegu og tilvalið að nota afganga. Tortilla og ostur er
undirstaðan en svo er hægt að leika sér með fyllinguna. Ef útbúið fyrir krakka
er nóg að setja bara ost og til dæmis nautahakk.
Hráefni:
Tortilla stór (helst frosna, þær eru miklu betri en þær sem eru í
hillunum)
Ostur, rifinn
Salsasósa (sterk eða mild eftir smekk)
Græn paprika, rauðlaukur og sveppir steikt á pönnu
Kjúklingabringur (grillaðar og kryddaðar) skornar í bita (eða annað kjöt að
eigin vali)
Aðferð:
Dreifið salsasósunni á tortilluna, setjið rifinn ost, steikta grænmetið og
kjúklinginn á helminginn. Ost svo aftur ofan á og brjótið tortillu saman. Betra
er að hafa minna í hverri tortillu en meira því þá hitnar hún auðveldlega í
gegn. Einnig er mikilvægt að jafnvægi sé á milli brauðs, osts og fyllingar.
Hitið í ofni eða á þurri pönnu þar til osturinn er bráðnaður og tortillan er
stökk. Skerið í sneiðar og berið fram með sýrðum rjóma og guacamole. Það er voða
gott að hafa nachos-flögur og ostasósu með þessu. Veljið nachos sem er ekki
mikið kryddað, helst bara saltað. Krydduðu flögurnar taka alltof mikið frá
matnum. Guacamole
Hráefni:
2 avocado stöppuð
¼ laukur (smátt saxaður),
2 msk. kóríander ferskt smátt saxað
½-1 rauður chili smátt saxaður
lime-safi
salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Blandið saman og smakkið til.
