Píta með kjúklingi

Sundum er tíminn til matargerðar ekki mikill og þá getur verið þægilegt að hafa eitthvað einfalt, hollt og fljótlegt í matinn. Píta með kjúklingi er bæði bragðgóð og létt í maga. Pítubrauðin er hægt að eiga í frysti og grípa til þegar hentar og oft er hægt að fá kjúklingabringur á tilboðsverði. Einnig er hægt að kaupa tilbúinn heilan kjúkling og skera hann niður í bita. Þessi uppskrift er miðuð við fjóra.

2 kjúklingabringur

1 msk. ólífuolía

4 pítubrauð

6 salatblöð

1 rauðlaukur

2 tómatar

salt og pipar

 

Tzatziki-sósa

1 agúrka, rifin gróft

300 g kotasæla eða sýrður rjómi

1 hvítlauksrif

½ tsk. salt

Aðferð

Skerið kjúklingabringurnar í bita og brúnið þær í olíu á pönnu. Kryddið með salti og pipar. Hitið upp pítubrauðið í ofni eða brauðrist. Setjið salat, lauk, tómata og kjúkling í brauðið og berið fram með tzatziki-sósunni.

Tzatziki

Rífið agúrkuna niður og kreistið mesta vökvann úr henni. Pressið hvítlauksrifið út í kotasæluna eða sýrða rjómann, eftir því hvað notað er, og blandið agúrkunni saman við. Bragðbætið með salti og pipar. Fyrir hvítlauksaðdáendur má vel setja meiri hvítlauk í sósuna. Einnig er vel hægt að setja fleiri grænmetistegundir í pítubrauðið