4 kjúklingabringur beinlausar og skinnlausar
½ bolli brauðrasp
¼ bolli rifinn parmesan ostur
½ tsk Italian seasoning í pakka
1/8 tsk svartur pipar
1/3 bolli hveiti
2 stórar eggjahvítur , slegnar aðeins saman
2 tsk olíuolía
4 bollar heitt soðið spaghetti
3 bollar Fljótleg og auðvelt pasta sósa, uppskrift neðar
1 bolli rifinn mozzarella ostur
Basilkum lauf (má sleppa)
Setjið hverja bringu inn í plastfilmu og
rúllið yfir með kökukefli til að gera þær þynnri.
Blandið saman í grunnri skál brauðraspi,
parmesan osti, ítalian seasoning og pipar. Dýfið hverri bringu fyrst í hveiti,
síðan eggjahvítur og síðast í raspblönduna.
Hitið olíu á stórri tefflon pönnu við miðlungs
háan hita. Bætið kjúklingnum á og steikið í 5 mínútur á hverri hlið, eða þangað
til kjúklingurinn er tilbúinn.
Setjið 1 bolla af spaghetti í djúpa eldfasta
diska , setjið ½ bolla af pastasósunni þar yfir. Setjið svo kjúkling ofan á allt
saman. Setjið síðan ¼ bolla af pastasósunni ofan á og stráið ¼ bolla mozzarella
yfir hvern disk. Setjið diskana á bökunarplötu og skellið í ofn í 3 mínútur eða
þangað til osturinn er bráðnaður. Skreytið með basilkum laufunum og berið fram
með hvítlauksbrauði.
Fljótleg og auðveld pastasósa
1
tsk olíuolía
1 bolli saxaður laukur
4
hvítlauksgeirar, pressaðir
½
bolli þurrt rauðvín eða 2 msk balsam edik
1
msk sykur
1
msk saxað ferskt basilkum eða 2 msk af þurru
2
msk tómatpúrra
Blandið öllu saman í skál og hrærið vel
