Paprikukjúklingur
1 kjúklingur, vænn
3 msk paprikuduft
3 msk matarolía
3 laukar, saxaðir
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
sterkt ungverskt paprikuduft eða chilipipar eftir smekk
nýmalaður pipar
salt
3 tómatar, saxaðir
1 græn paprika, fræhreinsuð og söxuð
1 dós (200 g) sýrður rjómi (18%)
Ofninn hitaður í 180 gráður. Kjúklingnum skipt
í fjóra hluta og þeim velt
upp úr paprikuduftinu. Olían hituð á pönnu eða í víðum potti sem þolir að
fara í ofninn og laukurinn og hvítlaukurinn látinn krauma í henni við
meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Síðan er honum ýtt út til
hliðanna (eða tekinn upp með gataspaða og geymdur) en kjúklingurinn settur á
pönnuna með haminn niður og steiktur þar til hann hefur tekið góðan lit. Þá
er bitunum snúið, laukurinn settur aftur á pönnuna ef hann var tekinn þaðan
og kryddað með sterku paprikdufti, pipar og salti. Tómötunum og grænu
paprikunni dreift yfir, þétt lok sett á pottinn og hann settur í ofninn og
kjúklingurinn bakaður í 45-50 mínútur, eða þar til hann er alveg steiktur í
gegn. Þá er hann tekinn upp og settur á fat. Sýrða rjómanum hrært saman við
soðið og smakkað til með pipar og salti. Sósan er svo borin fram með
kjúklingnum, gjarna ásamt soðnum eða steiktum kartöflum og salati.