Palestínskur kjúklingur (M'sakan)

1 vænn kjúklingur
2 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
salt
1 laukur
3-4 hvítlauksgeirar
1 sítróna

Kjúklingasoð
Kjúklingaafskurður (vængir, háls, hrygglengja)
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
1/2 kanelstöng
5-6 allrahandaber
1 sítrónubátur
nýmalaður pipar
salt
vatn

Kjúklingurinn höggvinn í 8 bita og háls, hryggur og vængendar höggvið af og
notað í soð (sjá næstu uppskrift). Eldfast fat, hæfilega stórt til að rúma
kjúklingabitana, penslað með hluta af olíunni. Kjúklingurinn kryddaður með
pipar og salti og raðað í fatið. Laukurinn skorinn í 8 bita og raðað á milli
kjúklingabitanna. Hvítlaukurinn skorinn í bita og dreift yfir. Börkurinn
flysjaður þunnt af sítrónunni með flysjunarjárni eða beittum hníf og dreift
yfir og síðan er safi úr hálfrí sítrónu kreistur yfir. Látið standa í a.m.k.
hálftíma. Ofninn hitaður í 180 gráður. Afganginum af olíunni dreypt yfir
kjúklinginn, hann settur í ofninn og bakaður í um 1 klst. Borinn fram með
lauksalati eða kúskús, og hrúgum af súmaki ef til er, en annars er gott að
hafa með honum sítrónubáta.

Á meðan kjúklingurinn steikist er soðið búið til:
Kjúklingasoð
Afskurðurinn skorinn í bita og settur í pott ásamt lauk og hvítlauk sem búið
er að skera í bita, kanelstöng, allrahanda, sítrónubáti, pipar og salti.
Köldu vatni hellt í pottinn, svo miklu að vel fljóti yfir, og látið malla í
um 1 klst. Þá er soðið síað og annaðhvort notað í lauksalatið hér á eftir,
eða notað til að bragðbæta kúskús.

Ég fór reyndar ekki alveg eftir uppskriftinni hvað varðar þetta lauksalat.
Eiginlega á að byrja á að sjóða laukinn þar til hann er glær. Ég vildi hafa
meira bragð af honum og lét nægja að hella yfir hann sjóðandi soðinu og láta