Ofnbakaðir kjúklingabitar með kartöflum, rauðlauk og eplum (fyrir 4)

1 kjúklingur, hlutaður í 6 bita
4 msk smjör
2 msk sojasósa
salt og svartur pipar
2 rauðlaukar, skornir í báta
8 meðalstórar kartöflur, skornar í tvennt
150-200 g beikon
2 epli, kjarnhreinsuð og skorin í báta
handfylli af fersku tímíani eða 1 tsk þurrkað

Sósa
1 dós hreint jógúrt
1 msk franskt sinnep
1 kúfuð tsk hunang
salt og svartur pipar

Aðferð
Stillið ofninn á 180°. Raðið kjúklingabitunum í ofnskúffu. Hitið saman í potti smjöri og sojasósu. Saltið og piprið. Penslið kjúklingabitana með leginum. Dreifið kartöflum og lauk hér og þar yfir kjúklinginn. Saltið og piprið. Sérstaklega kartöflurnar. Klippið beikonið yfir og steikið réttin í ofni í 20 mínútur. Takið úr ofninum og setjið eplabátana saman við. Dreifið tímíani yfir. Steikið áfram í 15 mínútur.

Sósan
Hrærið saman jógúrt, sinnep og hunang. Bragðbætið með pipar og salti. Berið fram með kjúklingabitunum.