Nachos kjúklingur með osti
4 kjúklingabringur
100 gr. rifinn Cheddar ostur
100 gr. rifinn Monterey Jack ostur
1 poki Santa Maria Tortilla flögur (salt, chilli eða osta), muldar
2 stór egg
2 msk. mjólk
Meðlæti:
Salsasósa, guacamole og sýrður
rjómi.
Forhitið ofninn í 180°C. Setjið eggin og mjólkina í grunnan disk og hrærið saman.
Dýfið kjúklingnum ofan í eggjablönduna og veltið honum svo upp úr muldu tortilla
flögunum. Bakið í ofni í 35 til 40 mín., eða þar til kjúklingurinn er steiktur í
gegn. Setjið ost, salsasósu, guacamole og sýrðan rjóma ofan á og berið fram.