Nachos kjúklingur á salatbeði með Quesadillas
Uppskrift fyrir fjóra:
4 stk. kjúklingabringur
50 gr. Santa Maria Tortilla flögur (muldar)
1/2 dl. hveiti
2 stk. egg, hrærð
Olía til steikingar
Quesadillas:
2 stk. Santa Maria Wrap Tortilla
1 dl. rifinn ostur
Olía til steikingar
Meðlæti:
2 dl. Santa Maria salsasósa
Salatblöð, nokkrar tegundir (t.d. rósakál, ísberg, rómverskt, ferskt rauðkál,
lollo rosso)
Kjúklingurinn:
Veltið kjúklingnum upp úr hveitinu, egginu, og loks muldu flögunum. Hitið olíu á pönnu við háan hita og steikiðkjúklinginn. Setjið hann síðan í ofn og bakið við 175° í 5 mínútur, eða þar til kjötið er gegnumsteikt.
Quesadillas:
Stráið ostinum yfir aðra tortilluna og leggið hina yfir. Hitið smá olíu á pönnu og steikið tortillu samlokuna á báðum hliðum. Skerið síðan í þríhyrnda bita (Quesadillas).
Setjið kjúklinginn ofan á salatið og berið fram með salsasósunni og Quesadillas.