6 kjúklingabringur
1 dl sítrónusafi
2 msk ólífuolía til penslunar
2 msk ólífuolía
1 meðalstór laukur
1 dós niðursoðnir tómatar
2 msk möndlur
2 msk rúsínur
2 tsk kapers
5 grænar ólífur
1/2 msk niðursoðinn grænn pipar
1 rauð paprika 1/2 græn paprika
1/2 gul paprika
2 1/2 dl appelsínusafi
1 dl kjúklingasoð
1/2 tsk kanill
1 msk kóríander (ferskt)
Raðið kjúklingabringunum í eldfast mót og
hellið sítrónusafa yfir.
Látið standa í ísskáp í 2 klst.
Penslið með ólífuolíu og bakið í 180 gráðu
heitum ofni í 20 mín.
Hitið olíu í potti og mýkið smátt saxaðan
laukinn. Bætið tómötum, rúsínum, kapers, ólífum og piparkornum út í. Látið
suðuna koma upp.
Hreinsið og takið kjarna úr paprikum og skerið
í strimla. Bætið út í ásamt appelsínusafa og kjötsoði og sjóðið í 15 mínútur.
Bragðbætið með kanil.
Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið áfram
í 20 mínútur í ofninum.
Skreytið með fersku kóríander og berið fram með hrísgrjónum og brauði.
