Mexíkanskt ívaf
3 kjúklingabringur
1 laukur
1 rauðlaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 dós salsasósa
1/2 dós ostasósa
Steiki kjúklinginn á og krydda hann með því sem til er, skelli honum svo í
heitan ofn í smá stund.
Síðan steiki ég laukinn og paprikurnar set sósurnar út í það og svo kjúklinginn.
set þetta svo í pönnukökurnar og raða þeim í eldfast mót set yfir þær sýrðan
rjóma og rifinn ost og skelli þessu svo í ofninn þangað til osturinn er
bráðnaður og stundum raða ég þessu eins og lasange
Mjög gott að nota sýrðan rjóma með bragðefnunum.
Borðað með hrísgrjónum og salati.