Marrakesh kjúklingalundir
fyrir 4 að hætti Rikku
1 msk ólífuolía
30 g möndluflögur
700 g kjúklingalundir
1 stór laukur, sneiddur
1 tsk ferskt engifer
1 tsk kóríanderduft
1/4 tsk saffrankrydd
1/4 tsk svartur pipar
1/2 tsk salt
1 tsk turmeric
1 kanilstöng
200 ml vatn
10 gráfíkjur, skornar í fjóra bita
rifinn börkur af 1 appelsínu
1 msk appelsínusafi
1/2 tsk kanill
1 msk hunang
5 þurrkaðar apríkósur, skornar í bita
1/4 tsk múskat
handfylli af söxuðu fersku kóríander
1 msk sesamfræ
Hitið olíu á pönnu og steikið möndlurnar þar til þær verða brúnar. bætið
kjúklingnum og lauknum út í og steikið þar til kjötið er brúnað. Setjið engifer,
kóríanderduft, saffran, pipar, salt, turmeric og kanilstöng út í, bætið vatninu
saman við og látið malla í 15-20 mínútur. Bætið öllu nema kóríander og
sesamfræum útí og látið malla áfram í 10 mínútur. Stráið kóríander og sesamfræum
yfir og berið fram með hrísgrjónum eða cous cous.