Maarud kjúlli...hrikalega gott

Kjúklingabringur
4 msk Taco sósa
1-2 bollar muldar flögur t.d. Sour cream/Onion
salt/pipar
75 gr smjör

Kjúklingur léttkryddaður með salt og pipar. Velt upp úr Taco sósu og þrýst niður í muldar flögurnar. Raðað í eldfast mót. Afgangi af flögum dreift yfir. Smjörklípur settar yfir hér og þar. Haft í ofni í ca. 45 mín á 180 gráðum.

Mexíkanskt ívaf

3 kjúklingabringur
1 laukur
1 rauðlaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 dós salsasósa
1/2 dós ostasósa

Steiki kjúklinginn á og krydda hann með því sem til er, skelli honum svo í heitan ofn í smá stund.

Síðan steiki ég laukinn og paprikurnar set sósurnar út í það og svo kjúklinginn. set þetta svo í pönnukökurnar og raða þeim í eldfast mót set yfir þær sýrðan rjóma og rifinn ost og skelli þessu svo í ofninn þangað til osturinn er bráðnaður og stundum raða ég þessu eins og lasange

Mjög gott að nota sýrðan rjóma með bragðefnunum.

Borðað með hrísgrjónum og salati.