Leynivopnið hans Gulla
2 kjúklingar
100 gr. smjörlíki (ég nota ekki alveg svo mikið og hef líka notað matarolíu
í staðinn með góðum árangri)
2 dl. apríkósumarmelaði, gróft.
2 dl. barbecuesósa, Hunts Original Style.
50 gr. púðursykur (ég sleppi honum og það er í besta lagi, marmelaðið er
nógu sætt)
1 peli rjómi,
1 dl. sojasósa.
Marmelaði, barbecuesósu, rjóma og soja blandað
saman í potti ásamt bræddu
smjörlíkinu.
Hellt yfir kjúklingana sem hlutaðir hafa verið sundur og steikt í ofni í
ca. klukkutíma.
Gott að nota svona stóran svartan steikarpott sem flestir kannast við.
Borið fram með hrísgrjónum, brauði og grænu salati.