KRYDDAÐUR LIME-KJÚKLINGUR MEÐ MALASÍU-HRÍSGRJÓNUM


150 ml hrein jógúrt
1 msk. olía
1 msk. karríduft
Safi úr einu lime
1 hvítlauksgeiri
4 kjúklingabringur
1 rauð paprika
1 laukur
Kóríander
Malasíu-hrísgrjón
2 bollar pandan-hrísgrjón
4 hvítlauksgeirar
1 engiferrót
3 bollar af kjúklingasoði
2 msk. smjör
3 skarlottulaukar

Aðferð:
Kjúklingur: Fínsaxið hvítlaukinn. Blandið því næst jógúrt, olíu, karrí, lime-safa og hvítlauk saman í skál og saltið og piprið eftir smekk. Skerið 5-6 djúpa skurði í kjúklingabringurnar, en þó ekki alveg í gegn. Skerið papriku og lauk og setjið út í jógúrtblönduna ásamt kjúklingabringunum. Marínerið í 10 mín.
Hitið steikingarpönnu vel og steikið kjúkling og grænmeti. Kóríander er stráð yfir þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn. Hrísgrjón: Saxið hvítlauk, skerið engifer í grófa
bita. Setjið kjúklingasoð í pott, bætið grjónum, hvítlauk og engifer út í og hitið að suðu. Þegar suða kemur upp er lok sett á og hiti lækkaður. Látið malla í um 7 mín. á lægsta hita. Fínsaxið skarlottulaukinn og steikið í smjöri. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin eru engiferbitarnir fjarlægðir (þeir sem vilja hafa þá með geta gert það) og lauknum hrært saman við
.