Kryddaðar kjúklingabringur með hrísgrjónum og ananas

2 kjúklingabringur, úrbeinaðar
1/2 tsk piparkorn
1/4 tsk kóríanderfræ
1/4 tsk kummin
4 kardimommur
2 hvítlauksgeirar
2 þurrkuð chilialdin
salt
2 msk olía
250 g hrísgrjón
1/2-1 ferskur ananas, vel þroskaður
3-4 tómatar, vel þroskaðir
salatblöð

Kjúklingabringurnar þerraðar og e.t.v. hamflettar. Pipar, kóríanderfræ,
kummin, kardimommur, hvítlaukur, chili og salt steytt saman í mortéli þar
til allt er komið í mauk og olíunni hrært saman við. Blöndunni núið vel inn
í báðar hliðar á kjúklingabringunum. Hrísgrjónin soðin í saltvatni þar til
þau eru meyr. Grillpanna hituð vel og kjúklingabringurnar steiktar við
meðalhita uns þær hafa tekið góðan lit og eru steiktar í gegn (best að skera
í þær til að athuga). Þegar þær eru u.þ.b. hálfsteiktar er ananasinn skorinn
í 6-8 geira og þeir steiktir á pönnunni við hliðina á kjúklingnum, eða á
annarri pönnu. Tómatarnir skornir í báta. Salatblöðunum raðað á fat og þegar
hrísgrjónin eru soðin er látið renna vel af þeim ef þarf og þau sett í
miðjuna. Kjúklingabringurnar teknar af pönnunni, settar á bretti og skornar
í fremur þunnar sneiðar. Raðað utan með hrísgrjónunum og tómötunum þar utan
við, og svo eru ananasgeirarnir lagðir ofan á tómatana og borið fram.

Það þarf ekkert endilega sósu með þessu en ég átti litla dós afThai Panang
Curry frá Thai Choice, sem fæst m.a. í 10-11. Ég skar svo niður kúrbítsbita
og rauða og gula papriku í litla teninga, steikti í örlítilli olíu og hellti
svo sósunni yfir og lét malla í nokkrar mínútur. Svo má bæta dálítilli
kókosmjólk eða rjóma út í ef sósan er of sterk.