Grískur kjúklingur með oregano og hvítlauk (Kotopoulo riganato)

1 kjúklingur, um 1,5-1,8 kg
3 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
salt
safi úr 1 1/2 sítrónu
1 1/2 msk oregano (rigani ef til er), eða eftir smekk
6 hvítlauksgeirar
6 lárviðarlauf
200 ml kjúklingasoð eða vatn

Ofninn hitaður í 200 gráður. Kjúklingurinn skorinn í 4 hluta og þeim velt
eða þeir penslaðir upp úr ólífuolíu og síðan kryddaðir með pipar og salti.
Afganginum af olíunni hellt í eldfast fat og bitunum raðað í það. Safinn úr
sítrónunum kreistur yfir og síðan er oreganoinu stráð yfir.
Hvítlauksgeirarnir afhýddir, pressaðir með flötu hnífsblaði en ekki kramdir,
og settir á milli kjúklingabitanna og lárviðarlaufin einnig. Helmingnum af
soðinu eða vatninu hellt í fatið og það síðan sett í ofninn í um 15 mínútur.
Þá er hitinn lækkaður í 180 gráður, afganginum af soðinu hellt í skúffuna,
álpappír breiddur lauslega yfir kjúklinginn og hann steiktur áfram í 35-40
mínútur eftir stærð bitanna. Best er að skera eða stinga í annað lærið til
að kanna hvort það sé fullsteikt. Kjúklingabitarnir eru svo teknir út og
þeim haldið heitum. Soðinu hellt í pott og fita fleytt ofan af. Soðið hitað
að suðu og smakkað til með sítrónusafa, pipar og salti (einnig getur verið
gott að setja ögn af hunangi og sinnepi út í). Borið fram með kjúklingnum,
helst óþykkt.