Kókossoðnar kjúklingabringur með sítrónugrasi og kúskússalati


4 kjúklingabringur
1 dós kókosmjólk (400 ml)
1 sítrónugrasstöngull, skorinn í helminga
1 tsk. engifer
1 tsk. kjúklingakraftur
sósujafnari

Kúskússalat
3 dl kúskús
3 dl sjóðandi vatn
1 dl steinselja, smátt söxuð
1 dl mynta, smátt söxuð
3 msk. sítrónusafi
1-2 tómatar, smátt saxaðir
1 laukur, smátt saxaður
salt

Setjið allt nema sósujafnarann í pott og sjóðið við vægan hita í
12-15 mín. Takið þá bringurnar upp úr og þykkið sósuna með sósujafnara.

Kúskússalat
Setjið kúskúsið í skál og hellið sjóðandi vatni yfir. Hrærið vel
saman, breiðið álpappír yfir skálina og kælið. Blandið öllu hinu
saman við kúskúsið og berið fram.

Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson - úr Gestgjafanum