Kjúklingur og taglíatellí

Kjúklingur eftir þörfum (bestar eru bringurnar, en í blankheitum er hægt að notast við aðra kjúklingahluta)

1 krukka grænt pestó
1 krukka sólþurrkaðir tómatar
1 hvítlauksrif
1 ds. fetaostur (án alls, þ.e. ekki í olíu, en það má líka nota það ef maður vill) 

Sólþurrkuðu tómmatarnir eru saxaðir í matvinnsluvél (ef slík græja er ekki til þá er hægt að saxa smátt í höndum)
Þeim er síðan hrært saman við pestóið og mörnu hvítlauksrifinu blandað saman við. Tæplega helmingnum af olíunni sem er með tómötunum er hrært saman við blönduna. Þessari blöndu er svo makað utan á kjúklinginn og raðað í eldfast mót. Steikt í 200 gráðu heitum ofni þar til orðið steikt í gegn. Þegar tíu mínútur eru eftir af steikingartímanum er fetaostinum dreift yfir kjúklinginn og steikt áfram.  Sjóðið taglíatelli (helst ferskt) samkv. leiðbeiningunum og berið fram með kjúllanum, góðu brauði og parmesanosti.

 

Verði þér að góðu ....  m m m m m m m m