Kjúklingur með jógúrt

500 g spergilkál, skorið í bita
3 dl kjúklingasoð
2½ dl undanrenna
2½ dl jógúrt, hreint
200 g ostur, 11%
4 msk maisenamjöl
1 msk karrí
6 stk kjúklingabringur, án húðar

 

Aðferð

  1. Steikið kjúklingabringurnar í 175°C heitum ofni í 30-40 mín.

  2. Léttsjóðið spergilkálið.

  3. Leysið maisenamjölið upp í undanrennunni. Látið suðuna koma upp á kjúklingasoðinu og bætið undanrennunni varlega saman við. Blandið jógúrt og karrí saman við og hrærið vel.

  4. Skerið kjúklingabringurnar í strimla. Leggið kjúklinginn og spergilkálið í eldfast mót, hellið sósunni yfir, stráið rifnum osti yfir og bakið í 25-30 mín. við 175°C.

Berið réttinn fram með hrísgrjónum og brauði eða salati ef vill.