Kjúklingurinn og hvítlauksgeirarnir 40
Gómsætur kjúklingur
Hráefni:
2 heilir ferskir kjúklingar
2 msk gróft salt (t.d. Maldon-salt)
handfylli ferskt timjan
handfylli ferskt rósmarín
handfylli fersk salvía
hálf handfylli fersk steinselja
2 sellerístilkar, sneiddir
40 hvítlauksgeirar, með hýði
4 msk ólífuolía
6 msk fljótandi hunang
1-2 tsk pipar
1 sítróna, sneidd
400 ml vatn
2-3 kjúklingakraftsteningar
20 litlar kartöflur, skornar til helminga
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C, saltið kjúklingana að innan og setjið helminginn af timjan,
rósmarín, salvíu og alla steinseljuna inn í þá. Bætið selleríinu í þá og 10
hvítlauksgeirum í hvorn kjúkling. Leggið kjúklingana í stórt fat með loki.
Nuddið ólífuolíu á kjúklingana,. Hellið hunangi yfir þá og kryddið með pipar.
Leggið sítrónusneiðar og afganginn af fersku jurtunum yfir þá. Hellið vatninu
meðfram kjúklingnum og myljið kjúklingakraftsteningana í það, Leggið lokið á og
eldið í 1 klukkustund og 20 mínútur. Örlitlu af soðinu hellt yfir á kjúklingana
á 20 mínútna fresti. Bætið kartöflubitunum við þegar u.þ.b. 30 mínútur eru eftir
af eldunartímanum og takið lokið af þegar 25-20 mínútur eru eftir. Þannig fáið
þið brúnan og fallegan lit á kjúklinginn.